Amos 2

1Svo segir Drottinn: Sökum þriggja, já fjögurra glæpa Móabíta vil ég eigi snúa aftur með það _ af því að þeir brenndu bein Edómítakonungs að kalki, 2vil ég senda eld gegn Móab, og hann mun eyða höllum Keríjótborgar. Og Móabítar munu deyja í vopnagný, við heróp og lúðurhljóm. 3Ég vil afmá stjórnandann meðal þeirra og deyða alla höfðingja þeirra með honum, _ segir Drottinn. 4Svo segir Drottinn: Sökum þriggja, já fjögurra glæpa Júdamanna vil ég eigi snúa aftur með það _ af því að þeir hafa hafnað lögmáli Drottins og eigi haldið boðorð hans, heldur látið falsgoð sín villa sig, þau er feður þeirra eltu, 5vil ég senda eld gegn Júda, og hann mun eyða höllum Jerúsalem. 6Svo segir Drottinn: Sökum þriggja, já fjögurra glæpa Ísraelsmanna vil ég eigi snúa aftur með það _ af því að þeir selja saklausan manninn fyrir silfur og fátæklinginn fyrir eina ilskó, 7þeir fíkjast í moldarkornin á höfði hinna snauðu og hrinda aumingjunum í ógæfu, faðir og sonur ganga til kvensniftar til þess að vanhelga mitt heilaga nafn, 8þeir liggja á veðteknum klæðum hjá hverju altari og drekka sektarvín í húsi Guðs síns. 9Og þó ruddi ég Amorítum úr vegi þeirra, er svo voru háir sem sedrustré og svo sterkir sem eikitré. Ég eyddi ávöxtum þeirra að ofanverðu og rótum þeirra að neðan. 10Ég flutti yður út af Egyptalandi og leiddi yður í fjörutíu ár í eyðimörkinni, til þess að þér mættuð eignast land Amoríta. 11Ég uppvakti spámenn meðal sona yðar og Nasírea meðal æskumanna yðar. Er þetta eigi svo, Ísraelsmenn? _ segir Drottinn. 12En þér gáfuð Nasíreunum vín að drekka og bönnuðuð spámönnunum að spá! 13Sjá, ég vil láta jörðina undir yður riða, eins og vagn riðar, sem hlaðinn er kornkerfum. 14Þá skal hinn frái ekki hafa neitt hæli að flýja í og hinn sterki ekki fá neytt krafta sinna og kappinn skal ekki forða mega fjörvi sínu. 15Bogmaðurinn skal eigi fá staðist, hinn frái eigi fá komist undan og riddarinn ekki forða mega fjörvi sínu. 16Og hinn hugdjarfasti meðal kappanna _ nakinn skal hann á þeim degi í burt flýja, _ segir Drottinn.
Copyright information for Icelandic